Vinnandi vegur á fullri siglingu Nú er verkefnið Vinnandi Vegur komið langt á leið og stendur það yfir til 31. maí. Hér til hliðar má sjá þau störf sem við höfum í boði hjá okkur og hvetjum við alla til að sækja um þau störf sem þeim líst á.
Verkefnið er þess eðils að störfin eru tímabundin til að byrja með en þrátt fyrir það hefur það mikinn ávinning í för með sér að komast í starf hvort sem er að ræða tímabundna ráðningu eða til lengri tíma. Meðal ávinninga þess að vera í starfi eru:
|
Skrifstofan lokuð í dag 20.apríl 2012 Skrifstofan er lokuð í dag þann 20.apríl 2012. Beiðnir eða fyrirspurnir vegna fyrirtækjaþjónustu skulu berast í gudlaugur(hjá)hugtak.is eða í síma 844-5656. Sé um fyrirspurnir vegna Vinnandi Vegs að ræða skulu þær beinast í gudlaugur(hjá)hugtak.is GLEÐILEGT SUMAR! Hugtak - mannauðsráðgjöf Nánar... |
Vinnandi Vegur Hugtak – mannauðsráðgjöf er þátttakandi í verkefni sem kallast VINNANDI VEGUR og hófst það um miðjan febrúar og stendur til 31.maí 2012. Vinnandi vegur er sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins. Ávinningur allra er hafður að leiðarljósi: Um leið og atvinnurekendum er gert kleift að nýráða starfsfólk er atvinnuleitendum, á skrá hjá Vinnumálastofnun, gefið aukin tækifæri til þátttöku í atvinnulífinu.
Þetta v... Nánar... |
Mannauðsráðgjöf Hugtak hefur nú breytt nafni sínu í Hugtak - mannauðsráðgjöf. Ástæða þess eru breyttar áherslur í þjónustuleiðum. Þetta táknar ekki að við fáumst ekki við ráðningar, síður en svo. Ráðningar eru að sjálfsögðu ein tegund af mannauðsráðgjöf og bjóðum við upp á slíka þjónustu fyrir fyrirtæki sem svo kjósa. Eini munurinn er utanumhaldið, við erum ekki lengur með áherslu á gagnagrunn til að veita hlutaþjónustu ráðninga. Við erum með öflugt tengslanet sem við notumst við og einnig teljum við skynsamlegt að auglýsa stöður til að fá fjölbreyttan og góðan hóp umsækjenda. Við leggjum þar að auki áherslur ... Nánar... |
Nýtt ár, nýjar áskoranir Nú er nýtt ár gengið í garð og er þetta tilvalinn tími til að staldra aðeins við og taka stöðuna. Hvert stefnum við, hvað viljum við gera næst, hverju þarf að breyta og hvernig. Guðlaugur Örn orðaði þetta svo vel í viðtali sem birt var í morgunblaðinu í dag þar sem hann talar um mikilvægi þess að vera með skýr og mælanleg markmið og staldra reglulega við og taka stöðuna og endurmeta ef þess þarf. Við hvetjum ykkur gott fólk til að staldra við og taka stöðuna og kanna hvaða verkefni liggja fyrir, hvert ferðinni er heitið og hvort þurfi aðeins að endurmeta stöðuna og eflaust setja sér ný markmið.... Nánar... |