Loksins! — Loksins! — Loksins! Hugtak er veforðabók í sálfræði og er fyrst sinnar tegundar sem slík. Hún byggir á söfnunarvinnu stofnenda í bland við ýmis íðorðasöfn, kennsluefni, jafnt sem góssi úr glósusöfnum og rykföllnum stílabókum. Við viljum hvetja alla til að leggja okkur lið með því að senda okkur ábendingar um efnið og/eða beiðnir um hugtök sem kann að vanta. Það er okkar von að Hugtak muni með tíð og tíma leiða til aukinnar stöðlunar á sálfræðitungunni, draga úr hugtakaruglingi og skapa ró. Hugtak er — og verður alltaf — opin öllum án endurgjalds.