Hinsegin orðabókin
androsexuality
karlkynhneigð
Karlkynhneigð er notað yfir það að hrífast einkum að körlum eða fólki sem samfélagið álítur karlmannlegt. Konur sem hrífast af körlum eru því karlkynhneigðar, þó mun algengara sé að þær séu sagðar gagnkynhneigðar. Karlar og kynsegin fólk sem hrífst af körlum eða „karlmannlegum“ eiginleikum er líka karlkynhneigt. Þetta orð felur ekki í sér þá ályktun að kynin séu tvö og gagnstæð og hampar því ekki kynjatvíhyggjunni á sama hátt og orðið gagnkynhneigð gerir.
asexuality
eikynhneigð
Hugtakið vísar til þess að laðast aldrei eða nær aldrei kynferðislega að öðru fólki. Sumt eikynhneigt fólk hefur kynhvöt en hefur ekki áhuga á að fullnægja henni með öðru fólki. Annað eikynhneigt fólk hefur litla eða enga kynhvöt. Sumt eikynhneigt fólk hefur eingöngu áhuga á rómantískum samböndum og/eða ókynferðislegri snertingu (til dæmis faðmlögum og kúri) með öðru fólki. Fólk sem hefur ekki áhuga á rómantískum samböndum telst eirómantískt.
bdsm
bdsm
Ýmsar skilgreiningar eru til á BDSM. Á vef félagsins BDSM á Íslandi kemur fram að BDSM standi fyrir bindingar, drottnun (og undirgefni), sadisma, masókisma, skynjun og munalosta. Þar er einnig tekið fram að hvers kyns bindi-, valda- eða munalostaleikir sem geta fallið undir BDSM þurfi að uppfylla þrjú skilyrði til að geta talist BDSM: að vera öruggir, meðvitaðir og samþykktir.
bisexuality
tvíkynhneigð
Að laðast að fleiri en einu kyni. Hugtakið á stundum við um fólk sem laðast að konum og körlum en getur einnig átt við um til dæmis karla sem laðast bæði að konum og trans fólki utan kynjatvíhyggjunnar. Algengur misskilningur varðandi tvíkynhneigð er að tvíkynhneigt fólk hrífist nákvæmlega jafn mikið af öllum kynjum. Vissulega getur það verið raunin en margt tvíkynhneigt fólk hrífst oftar, og jafnvel aðallega, að annaðhvort konum eða körlum en er samt tvíkynhneigt.
butch
butch
Orðið er oftast notað um hinsegin konur sem samfélagið lítur á sem karlmannlegar, til dæmis í klæðaburði og vali á áhugamálum. Butch er stundum notað á niðrandi hátt og er þá kannski sambærilegt við íslensku orðin trukkalessa eða trukkur, sem einnig eru niðrandi orð um „karlmannlegar“ lesbíur. Í öðrum tilfellum er orðið notað af lesbíum eða öðrum hinsegin konum sem skilgreina sig sem butch og er þá ekki niðrandi.
cis-gender
sískynja
Sís er lýsingarorð og forskeyti sem er notað um fólk sem upplifir sig á þann hátt að það tilheyri því kyni sem því var úthlutað við fæðingu. Sís kona er til dæmis kona sem var úthlutað kyninu „stelpa“ við fæðingu og er sátt við það. Orðinu er oft stillt upp sem andheiti við orðið trans. Orðið er sambærilegt við orðið gagnkynhneigð að því leyti að það á við um meirihlutann. Bæði orðin urðu til eftir að hinsegin fólk, í þessu tilfelli trans fólk, bjó til orð til að lýsa sínum veruleika. Þá varð einnig til þörf til að lýsa þeim sem ekki búa við þennan veruleika; að lýsa meirihlutanum og norminu.
crossdressing
klæðskipti
Með klæðskiptum er yfirleitt átt við að fólk klæðist fötum sem almennt eru talin tilheyra gagnstæðu kyni, til dæmis karlmaður sem er í fötum sem okkar menning álítur kvenföt. Ekki er átt við þau tilfelli þar sem fólk klæðist slíkum fötum í leiksýningu eða listgjörningi; það er nefnt drag. Mikilvægt er að gera greinarmun á trans fólki og fólki sem stundar klæðskipti en orðið klæðskiptingur hefur stundum verið notað á niðrandi hátt yfir trans fólk. Klæðskipti segja hvorki til um kynvitund né kynhneigð fólks.
drag
drag
Drag er það kallað þegar fólk klæðist fötum og sýnir látbragð sem talið er tengjast „gagnstæðu kyni“ á einhvers konar sýningu eða gjörningi. Þá er yfirleitt talað um dragkónga og dragdrottningar. Aftur á móti er talað um klæðskipti þegar fólk kýs sjálft að fara í föt sem talin eru tengjast „gagnstæðu kyni“ án þess að það sé hluti af sérstökum listgjörningi eða leikhúsi. Þá má nefna að sem listform hefur drag tengst hinsegin samfélaginu náið síðastliðna öld eða svo, enda eru dragdrottningar og -kóngar gjarnan hinsegin.
gender expression
kyntjáning
Kyntjáning segir til um hvernig fólk tjáir kynvitund sína dagsdaglega, til að mynda með klæðavali og líkamstjáningu. Kyntjáning er hluti af lífi allra; sumir tjá kyn sitt á óhefðbundinn hátt, eru kannski með skegg og á háum hælum, á meðan kyntjáning annarra fellur betur að norminu.
gender identity
kynvitund
Kynvitund segir til um hvernig fólk vill lifa og vera í sínu kyni. Kynvitund vísar ekki til kynfæra, líffræði eða útlits heldur upplifunar fólks af eigin kyni. Allir hafa kynvitund því allir upplifa kyn sitt á einhvern hátt. Fæstir þurfa nokkru sinni að hugsa út í kynvitund sína því hún samræmist því kyni sem þeim var úthlutað við fæðingu. Flestir eru sem sagt sískynja og hafa aldrei þurft að efast um að það kyn sem ljósmóðirin tilkynnti þegar þeir fæddust sé þeirra rétta kyn. Aðrir efast eða eru fullvissir um að það kyn sem ljósmóðirin gaf upp sé ekki þeirra rétta kyn og eru því trans. Kynvitund getur verið margs konar. Sumt fólk upplifir sig sem karla, aðrir sem konur og sumir upplifa sig sem blöndu af hvoru tveggja og eru þá kynsegin. Enn aðrir upplifa sig hvorki sem konu né karl. Sumir fara í aðgerðir eða taka inn hormóna til að breyta líkama sínum og útliti og samræma það þannig við kynvitund sína. Það er kallað að fara í kynleiðréttingu. Sumir vilja ekki fara í slíkar aðgerðir.
gender reassignment
kynleiðrétting
Kynleiðrétting er ferli sem sumt trans fólk fer í gegnum til að leiðrétta kyn sitt. Það getur til að mynda falið í sér hormónainntöku, brjóstnám og/eða aðgerðir á kynfærum. Kynleiðrétting vísar ekki eingöngu til skurðaðgerða á kynfærum þó að slík aðferð geti verið einn þáttur kynleiðréttingarferlis. Ekki nauðsynlegt að fara í aðgerðir til að vera trans. Sumt trans fólk kýs að fara eingöngu á hormóna en sleppir öllum aðgerðum. Aðrir fara í aðgerðir eins og brjóstnám en sleppa öðrum þáttum kynleiðréttingar. Val hvers og eins einstaklings er mjög persónuleg ákvörðun og að baki þess geta legið margvíslegar ástæður. Hérlendis er ekki skylda að fara í nokkurs konar aðgerðir eða taka inn hormón til að fá leiðréttingu á kyni sínu í þjóðskrá. Þó þarf fólk að hafa lifað í því kynhlutverki sem það kýs sér í ákveðinn tíma áður en slík leiðrétting fer fram. Fólk getur verið trans hvort sem það kýs að fara í kynleiðréttingarferli eða ekki. Áður var oft talað um kynskiptaaðgerð og um trans fólk sem kynskiptinga. Þetta eru ekki orð sem trans fólk hefur sjálft kosið sér og því ber að forðast að nota þau. Kynleiðrétting lýsir ferlinu betur þar sem fólk upplifir að það sé að leiðrétta kyn sitt fremur en að það sé að skipta um kyn.
genderqueer
kynsegin
Kynsegin er hugtak sem nær yfir fólk sem skilgreinir kyn sitt utan tvíhyggju kynjakerfisins (og er því einnig trans). Sumt kynsegin fólk er t.d. karlkyns og kvenkyns, annað hvorki karlkyns né kvenkyns eða skilgreinir ekki kyn sitt. Kynsegin er því í raun regnhlífarhugtak undir regnhlífarhugtakinu trans. Athugið að hér er ekki verið að vísa til líffræðilegra kyneinkenna fólks heldur kynvitundar, þ.e.a.s. upplifunar fólks af kyni sínu.
graysexual
grá eikynhneigð
Grá eikynhneigð vísar til þess að kynferðisleg aðlöðun sé róf fremur en tveir aðskildir flokkar. Þannig flokkast fólk ekki eingöngu í flokkana tvo eikynhneigðir og svo allir hinir sem hafa áhuga á kynlífi heldur er um að ræða róf þar sem fólk getur upplifað meiri eða minni aðlöðun að öðru fólki kynferðislega. Grá eikynhneigt fólk staðsetur sig nálægt eikynhneigð á þessu rófi og finnur því til lítillar kynferðislegrar aðlöðunar. Sumt grá einkynhneigt fólk kallar sig þó eikynhneigt dags daglega enda má segja að grá eikynhneigð sé undirflokkur eikynhneigðar. Munurinn á grá eikynhneigðum og eikynhneigðum manneskjum er sá að þau sem eru eikynhneigð upplifa almennt enga kynferðislega aðlöðun eða þörf til að svala henni. Þau sem eru grá eikynhneigð finna fyrir kynferðislegri aðlöðun en hún er það lítil að þau finna sig ekki innan annarra kynhneigða á borð við gagnkynhneigð eða samkynhneigð. Eða þá að þau finna fyrir kynferðislegri aðlöðun og hafa þörf fyrir að svala henni en eingöngu undir mjög sértækum kringumstæðum. Sumt grá eikynhneigt fólk upplifir til dæmis eingöngu kynferðislega löngun til fólks sem það hefur djúpstæða tilfinningalega tengingu við (það kallast demisexual á ensku). Líkt og eikynhneigt fólk upplifir sumt grá eikynhneigt fólk rómantíska hrifningu.
gynosexuality
sveigjanleg gagnkynhneigð
Þegar fólk skilgreinir kynhneigð sína á einn hátt en er opið fyrir annars konar kynhneigðum. Fólk sem skilgreinir sig sem gagnkynhneigt en er opið fyrir annars konar kynhneigðum er kallað heteroflexible, eða sveigjanlega gagnkynhneigt.
homoflexibility
sveigjanleg samkynhneigð
Þegar fólk skilgreinir kynhneigð sína á einn hátt en er opið fyrir annars konar kynhneigðum. Fólk sem skilgreinir sig sem samkynhneigt en er opið fyrir annars konar kynhneigðum er kallað homoflexible, eða sveigjanlega samkynhneigt.
homosexuality
samkynhneigð
Manneskja sem laðast að fólki sem er af sama kyni og hún sjálf tilheyrir. Hommi er samkynhneigður karlmaður og lesbía er samkynhneigð kona.
intersex
intersex
Kyneinkenni vísa til litninga, kynkirtla og líffærafræðilegra sérkenna manneskju, til dæmis æxlunarfæra, uppbyggingar kynfæra, hormónastarfsemi, vöðvauppbyggingar, dreifingar hárs, brjóstavaxtar og/eða hæðar. Það fólk sem er með ódæmigerð kyneinkenni er intersex.
monosexuality
einkynhneigð
Regnhlífarhugtak yfir þær hneigðir sem vísa til þess að fólk hrífist aðeins af manneskjum af einu tilteknu kyni. Gagnkynhneigð er dæmi um einkynhneigð.
pansexuality
pankynhneigð
Pankynhneigð manneskja hrífst af fólki af öllum kynjum, konum, körlum og fólki af öðrum kynjum. Það þýðir þó ekki endilega að pankynhneigðir hrífist jafn mikið af öllu fólki. Pankynhneigt fólk getur haft sterkari tilhneigingu til að hrífast af fólki af tilteknu kyni fremur en öðru. Sumir kjósa að skilgreina pankynhneigð sem svo að fólk hrífist af persónuleika fólks óháð kyni. Til marks um það er pankynhneigð stundum kölluð persónuhrifning. Aðrir tengja ekki við þá skilgreiningu og segja kynið vissulega skipta sig máli þótt þeir hafi þann hæfileika að geta hrifist af öllum kynjum.
polyamory
fjölástir
Fjölástir eru sambandsform þar sem fólk er í upplýstum og meðvituðum ástarsamböndum með fleiri en einum aðila í einu. Grundvallaratriði í fjölástum eru opin samskipti þar sem fólk ákveður reglurnar fyrir sín sambönd sjálft í fullu samráði við alla aðila. Fjölásta sambönd geta tekið á sig margvíslegar myndir. Ein manneskja getur átt í sambandi við tvo aðila en þeir tveir aðilar ekki við hvorn annan en þá er talað um V samband. Einnig eru til þríhyrnings-sambönd þar sem þrír aðilar eru í sambandi hver með öðrum. Í fjölásta samböndum er framhjáhald skilgreint sem hvers konar brot á þeim samingi sem þú gerðir við það fólk sem þú ert í sambandi með.
polysexuality
fjölkynhneigð
Hugtakið fjölkynhneigð hefur tvenns konar merkingu. Annars vegar merkir það að laðast að fólki af fleiri en tveimur kynjum en þó ekki fólki af öllum kynjum eins og pankynhneigt fólk gerir. Hins vegar er það notað sem regnhlífarhugtak yfir þær hneigðir sem vísa til þess að fólk hrífist af manneskjum af fleiri en einu kyni. Tvíkynhneigð er þannig dæmi um fjölkynhneigð.
they, them, their, theirs
hán – hé – hín
Sumt kynsegin fólk kýs að nota kynhlutlaus persónufornöfn. Íslensk persónufornöfn sem notuð eru um fólk vísa alltaf til karlkyns (hann) eða kvenkyns (hún). Að auki er til hvorugkynspersónufornafnið það sem er almennt ekki notað um manneskjur. Nýlega hafa fornöfnin hán, hé og hín rutt sér til rúms hérlendis. Þau eru einkum notuð af kynsegin fólki.
transgender
trans
Trans er regnhlífarheiti yfir fólk sem er með kynvitund sem samræmist ekki því kyni sem því var úthlutað við fæðingu. Þegar við fæðumst er í langflestum tilfellum tilkynnt um kyn okkar, hér er fæddur lítill drengur eða lítil stúlka. Fólk sem hefur aldrei þurft að efast um að þessi tilkynningin hafi verið rétt er sískynja. Þetta á við um velflesta. Trans fólk, aftur á móti, hefur á einhverjum tímapunkti efast um að það kyn sem tilkynnt var um við fæðingu sé rétt og passi. Athugið að hér er ekki átt við líffræðileg kyneinkenni fólks heldur upplifun fólks af kyni sínu. Undir trans regnhlífina falla trans karlar og trans konur, fólk sem fer í leiðréttingaraðgerðir, fólk sem fer ekki í aðgerðir og kynsegin fólk. Trans er á íslensku notað sem lýsingarorð eitt og sér (sbr. að vera trans) eða með öðrum orðum (sbr. hún er trans kona). Margt fólk ruglar saman orðunum trans karl og trans kona. Góð þumalputtaregla til að muna merkingu hvors orðs er að alltaf er talað um fólk í því kyni sem það er í dag. Þannig er trans karl til dæmis manneskja sem í æsku (eða lengur) var álitin stelpa/kona af samfélaginu en lifir í dag sem karl. Sumt trans fólk kýs að nota orðið trans um sjálft sig og segist til að mynda vera trans kona. Annað trans fólk notar það hugtak lítið eða alls ekki um sjálft sig. Þar geta legið ólíkar ástæður að baki. Margt trans fólk upplifir það sem mótandi þátt fyrir sjálfsmynd sína að hafa farið í gegnum kynleiðréttingarferli eða verið álitið af öðru kyni í æsku. Þannig finnst því mikilvægt að nota orðið trans um sjálft sig til að leggja áherslu á hversu stór og mótandi þáttur það að vera trans er. Annað trans fólk upplifir þetta á ólíkan hátt og finnst það að vera trans ekki miðlægur þáttur í þeirra sjálfsmynd. Þeim finnst mikilvægara að vera kona, karl eða manneskja (fremur en trans kona, trans karl eða trans manneskja) og vilja stundum síður að annað fólk viti að það sé trans. Mikilvægt er að virða val hvers og eins í þessum efnum.
Heimild:
➝ Hinsegin frá Ö til A
